Frí afhending með Dropp og Póstinum ef verslað er fyrir 20.000 kr. eða meira.
Skilmálar
Þessi vefsíða er í eigu Black Pepper ehf., kt. 610812-0580.
Með því að nota vefverslunina blackpepper.is samþykkir þú eftirfarandi viðskiptaskilmála.
Ekki hika við að hafa samband við verslunina á netfangið vefverslun@blackpepper.is ef þú
hefur einhverjar spurningar.
Kaupskilmálar vefverslunarinnar.
Seldar vörur eru eign seljanda þar til kaupandi hefur greitt kaupverðið að fullu.
Eftir að pöntun er gerð í vefverslun og staðfesting á greiðslu hefur borist, sendir Black Pepper Fashion kaupanda staðfestingarpóst á netfangið sem kaupandi gaf upp við skráningu og er þákominn bindandi samningur um kaup. Við staðfestingu pöntunar í vefverslun skuldbindurviðskiptavinur sig til þess að samþykkja notkunarskilmála Black Pepper Fashion.
Pantanir sem berast yfir helgi og á frídögum eru staðfestar næsta virka dag. Ef varan er ekki til sendir Black Pepper Fashion tölvupóst á viðskiptavin til að upplýsa um seinkun eða
endurgreiðslu ef varan er ófáanleg.
Verð á vefsíðunni eru gefin upp í íslenskum krónum og með virðisaukaskatti (VSK). Allt verð í
vefverslun er birt með fyrirvara um innsláttarvillu og villur í reiknireglum vefverslunarinnar.
Black Pepper Fashion áskilur sér rétt til að falla frá afhendingu vörunnar ef skýr verðvilla birtist á
vefsíðunni.
Allar upplýsingar sem birtar eru í vefversluninni eru birtar með fyrirvara um innsláttarvillur eða
uppfærslutafir. Einnig getur verið litamunur á mynd af flík og af flíkinni sjálfri.
Vöruskil
Áður en pöntun fer í póst getur kaupandi hætt við með því að senda tölvupóst á netfangið
vefverslun@blackpepper.is
Heimilt er að skila vöru innan 14 daga frá því að neytandi fær hana í sína vörslu, en auðvitað
viljum við fá vöruna sem fyrst til baka.
- Til að geta skilað vöru:
- Varan þarf að vera ónotuð.
- Varan þarf að vera óskemmd/í fullkomnu lagi.
- Varan þarf að vera með bæði framleiðslu- og verðmiða.
- Kvittun fyrir greiðslu vörunnar þarf að fylgja með.
Hægt er að skila með því að senda vöruna til okkar: Black Pepper Fashion, Laugavegur 178, 105 Reykjavík og þá þarf að tilkynna skil á netfangið vefverslun@blackpepper.is eða koma með vöruna í verslunina. Ef varan er send til okkar er skilakostnaður (sendingarkostnaður) kaupanda
nema varan sé gölluð þá fellur skilakostnaður á seljanda, Black Pepper Fashion.
Útsölu- og tilboðsvörur
14 daga skilafrestur er á útsöluvöru sem keypt er í vefverslun en auðvitað viljum við fá vöruna
sem fyrst til baka.
Verðið á vörunni miðast við daginn sem hún er keypt.
Gjafir
Ef vara er merkt sem gjöf og send beint til viðkomandi sem síðan skilar vörunni fær viðkomandi
inneignarnótu að andvirði vörunnar á þeim tíma sem henni er skilað, nema viðkomandi geti
sýnt kvittun eða pöntunarstaðfestingu fyrir verði vörunnar.
Galli
Ef viðskiptavinur kaupir gallaða vöru skal senda tilkynningu með mynd, um leið og galli kemur
fram í vöru, á netfangið vefverslun@blackpepper.is Einnig er hægt að koma með vöruna til
okkar í verslunina.
Ef vara er gölluð þá er boðið upp á viðgerð, nýja vöru, afslátt eða afturköllun
kaupa/endurgreiðslu, eftir atvikum hverju sinni.
Ef seljandi getur með auðveldum hætti gert við hlutinn getur kaupandi ekki gert strax kröfu um
riftun og endurgreiðslu. Er það í samræmi við lög um neytendaábyrgð.
Um rétt kaupenda vegna galla vísast til laga um neytendaábyrgð nr. 48/2003.
Endurgreiðsla
Endurgreiðsla fer fram eftir að Black Pepper Fashion hefur móttekið vöruna frá kaupanda og
eftir að varan hefur verið yfirfarin/skoðuð af Black Pepper Fashion.
Ef endurgreiðsla er samþykkt fer hún fram eins og upprunalega var greitt fyrir vöruna.
Endurgreiðsla skal berast kaupanda innan nokkurra daga.
Ef kaupandi hefur ekki fengið endurgreiðslu innan 10 daga frá staðfestingarpósti um samþykkt
endurgreiðslu þá skal viðkomandi hafa samband við vefverslunina á netfangið
vefverslun@blackpepper.is
Persónuupplýsingar
Þegar keyptar eru vörur í vefverslun Black Pepper Fashion þarf kaupandi að gefa upp t.d.
kreditkortauppýsingar, nafn, heimilisfang, símanúmer og netfang.
Með því að skrá sig í Vildarklúbb og kaupa vöru í vefverslun Black Pepper Fashion samþykkir
viðkomandi söfnun á slíkum persónuupplýsingum.
Ef viðkomandi skráir sig á póstlista Black Pepper Fashion fer netfang viðkomandi á póstlista.
Viðkomandi getur alltaf afskráð sig af listanum.
Allar persónuupplýsingar sem safnað er inn á vefverslun Black Pepper Fashion er farið með sem
trúnaðarmál. Upplýsingar gefnar upp af kaupanda verða ekki seldar né afhentar þriðja aðila
undir neinum kringumstæðum.
Með því að nota vefverslun Black Pepper Fashion samþykkir kaupandi og viðurkennir vinnslu og
skráningu á persónuupplýsingum sínum.